20.04.1921
Efri deild: 48. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (403)

2. mál, erfðafjárskattur

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Í frv. þessu eru litlar breytingar gerðar á gildandi lögum um erfðafjárskatt. Skatthækkun er aðallega á niðjaarfi. Aftur er dregið úr skattinum með því að fjölga þeim, sem skatt greiða eftir þeim flokki, sem lægstur verður, þrátt fyrir skatthækkunina. Undir þann flokk eru talin kjörbörn, fósturbörn, og þeir, sem fá fjórðungsgjöf. Orðið fósturbarn hefir ekki fengið neinn fastan skilning í lögum, og veldur því nokkrum örðugleikum að ákveða, hvað felst í hugtakinu fósturbarn. Þar undir mundu börn talin, sem arf eða gjöf taka samkv. arfleiðsluskrá. En nokkuð erfitt er að ákveða, hver börn sjeu fósturbörn af þeim börnum, sem taka arf samkv. skyldleika. Í því efni er ekki hægt að ákveða, að barn sje fósturbarn, þótt það hafi verið tíma hjá viðkomandi arfleiðanda, en að líkindum verður að leggja aðaláhersluna á, hvaða vilji hafi komið fram hjá arfleiðandanum, til þess að taka barnið að sjer til uppeldis og fósturs, hvort sem það hefir verið hjá honum skemri eða lengri tíma.