30.04.1921
Efri deild: 59. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (853)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Sigurður Eggerz:
Aðeins stutt athugasemd. — Háttv. frsm. (S. H. K.) sagði, að jeg hefði víst þóst gera sýslumanninum í Borgarnesi bjarnargreiða með því að fá felt burtu ákvæðið um ábyrgð sýslufjelaganna fyrir láni hans. Því fór fjarri, að jeg vildi gera honum bjarnargreiða með þessu. En jeg leit svo á, að það væri óþægilegt fyrir sýslumanninn að þurfa að sækja um slíkt til sýslunefndanna. Og áleit hins vegar, að ef ríkissjóður vildi ekki taka húsið eitt sem næga tryggingu fyrir láninu, þá væri engin ástæða til, að sýslusjóðirnir gerðu það heldur.
Jeg sje ekki, að það sje rjett hjá Alþingi að binda litlum sýslufjelögum þá bagga, sem ríkissjóðurinn sjálfur er hræddur við.
Jeg á hjer brtt. á þskj. 424. Jeg þarf ekki að ræða mikið um það mál, því að hv. þm. Vestm. (K. E.) hefir rækilega lýst nauðsyninni. Jeg ætlaði alls ekki með þessari brtt. að draga úr hjálpinni til björgunarskips Vestmannaeyinga, heldur hugðist jeg reyna að koma með leið, sem hv. deild gæti fallist á. Það er tilraun til þess að bjarga málinu. Jeg hefi fylgt með áhuga þessu fyrirtæki Vestmannaeyinga og haft fullan skilning á þörf þeirra. Jeg minnist þess, að jeg átti hjer á þingi í harðri og langri baráttu til þess að fá brú á Jökulsá, sem er mesta manndrápsvatnsfall landsins. Og hjer er um fleiri mannslíf að tefla, enda er mjer ljúft að leggja fyrirtækinu lið.