06.05.1921
Neðri deild: 63. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 811 í B-deild Alþingistíðinda. (868)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Pjetur Ottesen:
Jeg hjó eftir því í ræðu háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.), er hann sagði þar, að að nokkru leyti lagi fyrir loforð frá síðasta þingi um hækkun á launum sendiherrans. Málinu horfði þannig við á síðasta þingi, að till. um að hækka laun sendiherrans var samþ. í þessari deild með eins atkvæðis mun, en feld í Ed. með 9: 5 atkv., og voru því alls á þinginu greidd 17 atkvæði með hækkuninni en 20 á móti. Það er því síður en svo, að hægt sje að segja, að nokkurt fyrirheit frá þinginu liggi fyrir um þetta. Það ber og að líta á það, að það gæti verið í fullu samræmi, þó Nd. feldi þessa hækkun nú, þó hún væri aðeins samþ. í fyrra, því síðan hefir orðið verðfall á flestum nauðsynjum, og sú ástæða, sem hefði verið til hækkunar í fyrra af þessum sökum, er nú úr sögunni. Jeg geri og ráð fyrir, að sá maður, sem við þessu embætti tók, hafi gert sjer ljósa grein fyrir því, sem hann var að gera, og eins og jeg hefi áður tekið fram, lá frá þingsins hálfu ekkert fyrirheit um það, að launin yrðu hækkuð.