14.03.1923
Neðri deild: 20. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í B-deild Alþingistíðinda. (135)
13. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jakob Möller:
Eiginlega er ekki hægt að svara þessari síðustu ræðu hv. frsm. minni hl. (ÞorlG). Hann fór svo rækilega í hring og í kringum sjálfan sig, að betur verður það ekki gert. Jeg vil því í þessu sambandi aðeins víkja að einu atriði, og það er þetta, hvar og hvernig eigi að vinna upp það, sem ríkissjóður tapar við það, að skatturinn lækkar. Það verður sem sje að vinnast upp með nýjum tollum, og halda menn þá virkilega, að það verði betra eða ljettara fyrir allan almenning en lítilvæg hækkun tekjuskattsins? Það er t. d. sagt, að jafnvel þessi verndari fátæklinganna, sem mun vilja teljast, og síðast talaði. sje fylgjandi allverulegri tollhækkun á vefnaðarvörum. Þessi afstaða minni hlutans nú, að vilja leggjast á móti hinum nýja skattstiga við 3. umr., þó hann sje að mestu sniðinn eftir hans eigin till. við 2. umr., af því að hann sje of hár, en undirbúa jafnframt aðrar hækkanir á tollum, virðist ekki geta stafað af öðru en þráa.