04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1690 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)
5. mál, útflutningsgjald
Frsm. minni hl. (Jakob Möller):
Jeg ætla að draga brtt. mína til baka til 3. umr. En jeg er enn á sömu skoðun og áður um það, að gjald þetta sje óhæfilegt, þó jeg hafi viljað gera það til samkomulags að fara ekki fram á meira en helmings lækkun, en ekki algert afnám, að þessu sinni.