09.05.1923
Neðri deild: 60. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)

154. mál, lífeyrir handa Einari Þorkelssyni

Jakob Möller:

Jeg á hjer ásamt hv. þm. Dala. (BJ) brtt. við frv., á þskj. 580, þar sem við förum fram á, að hækkaður verði lítið eitt lífeyrir Einars Þorkelssonar fyrverandi skrifstofustjóra. Jeg þarf ekki að tala langt mál um þessa brtt. Hv. deild eru svo kunnugir allir málavextir, að slíkt ætti að vera óþarft. Það er kunnugt, að Einar Þorkelsson er orðinn farlama maður og er allsendis ófær til að vinna fyrir sjer á nokkurn hátt. Hann hefir nú verið starfsmaður landsins nær 20 árum, og unnið hjer við þingið, fyrst sem skrifstofumaður og síðan sem skrifstofustjóri, um mörg ár. Má rekja veikindi hans til áfalls, er hann varð fyrir við starf sitt hjer í þinghúsinu, við að bjarga því frá skemdum. Býst jeg við, að háttv. þdm. sje kunnugt um, hvað það var. Það var nefnilega vetur einn, er vatnsæðar hjer í húsinu sprungu, og hann gekk vel fram í því að bæta úr því, en veiktist við það, og hefir ekki fengið heilsuna aftur. Vænti jeg því, að háttv. deild taki þessu máli vel og geri sómasamlega við þennan mann.