05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1972 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)
9. mál, vatnalög
Jakob Möller:
Jeg ætla aðeins að gera grein fyrir mínu atkvæði. Jeg greiddi ekki atkvæði um einstakar greinar frv. við 2. umr., nema 2. gr., og var þó óánægður með orðalag margra þeirra og taldi nauðsynlegt að breyta þeim meira í samræmi við 2. gr. En jeg lít svo á, að þar sem rjettargrundvöllurinn er ótvírætt ákveðinn í 2. gr. þannig, að landareign hverri fylgi aðeins takmarkaður umráða- og hagnýtingarrjettur á vatni, þá verði ákvæði annara greina frv. að skýrast samkvæmt því, og það ósamræmi, sem vera kann á milli 2. gr. og annara greina frv., má þá laga síðar. Þess vegna greiði jeg frv. nú atkvæði.