21.03.1923
Neðri deild: 25. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (2301)

55. mál, útflutningur hrossa

Hákon Kristófersson:

Svo mun nú vera um þetta mál, sem önnur, að sínum augum lítur hver á silfrið. Þótt svo sje skipað fyrir, að hross skuli vera vel útlítandi, þegar þau eru send út, þá er misjafnt, hversu háar kröfur menn gera í því efni. Slíkt mun jafnaðarlega fara eftir því, hve kröfuharður viðkomandi útflutningsstjóri er um útlit og ásigkomulag hrossanna. Það er að mínu áliti ófært að senda út aðra hesta en þá, sem eru í góðu standi, því annað getur stórspilt framtíðarmarkaðinum. Öðruvísi leist mjer þó á suma af hestum þeim, sem hjer voru á hafnarbakkanum fyrir skömmu og munu hafa verið sendir með Lagarfossi síðast, en að þeir væru allir í útflutningshæfu standi; voru sumir þeirra þannig, að þeir hefðu betur aldrei farið, og ekki er mjer kunnugt um, að neinn hafi verið talinn óhæfur til útflutnings. Hugsa jeg, að jeg hafi ekki ver vit á hrossum en hver annar, en heima í minni sveit, eða þar sem jeg þekki til, mundu sumir af hestunum ekki taldir nema í laklegum vorholdum. Jeg viðurkenni það, að vond veður koma oft að sumri til, en aftur á móti geta oft og tíðum fallið til góðar ferðir á vetrum, en það hygg jeg þó miklu ótíðara, að sumarferðir sjeu lakari fyrir hrossin en ferðir að vetrinum. Vildi jeg og síst bægjast við því, að bændur fengi góðan markað fyrir hrossin og hefðu gróða af vetrarsölunni, en gæta verður hófs í öllu, og þótt svona fjelli til í vetur, að tíðin hefir verið góð og hross í sæmilegu standi víðast hvar, þá er ekki svo ávalt, og jeg treysti ekki mikið á eftirlitið, sem hafa á með útflutningunum, þó ekki væri af annari ástæðu en þeirri, hve dómar manna eru misjafnir á því, hvað telja beri sæmilegt útlit. Enda mundu oft og tíðum vandræði geta hlotist af vetrarútflutningi, sjerstaklega hvað það snertir að koma hrossunum á útflutningsstaðinn. Hvernig færi sá nú t. d. að, sem væri á ferð með t. d. 100 hross eða fleiri og kæmi með þau á eitthvert heimili í hríðarveðri? Afleiðingin yrði sú, að hrossin yrðu að vera úti að nóttunni og leita sjer skjóls undir húsveggjum, ef til væru. Þannig lagað kæmi þó ekki fyrir að sumrinu.