05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í C-deild Alþingistíðinda. (2460)

86. mál, mælitæki og vogaráhöld

Jón Baldvinsson:

Þetta þing mun verða talið mikið sparnaðarþing, ef því tekst að leggja niður síldarmatsmanninn á Seyðisfirði og löggildingarstofuna. En það versta er, ef sagt kynni að verða, að þetta hefði alt verið gert í ógáti, eins og nú hefir orðið hjá allshn.

Jeg er á móti þessu frv., því jeg tel að eftirlitið verði miklu ótryggara, ef frv. verður samþ. eins og það nú er.