05.05.1923
Neðri deild: 58. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 895 í C-deild Alþingistíðinda. (2634)

67. mál, mannanöfn

Jakob Möller:

Jeg er á sömu skoðun um frv. þetta og jeg var síðast, þrátt fyrir það, að brtt. nefndarinnar eru til nokkurra bóta. Álít jeg, að hjer sje gengið alt of nærri persónulegum rjetti manna. Menn eru hjer sviftir eign, sem þeim er dýrmætari en venjuleg fjárrjettindi eða eign. Álít jeg þetta ósæmilegt og þinginu ósamboðið.