02.03.1923
Neðri deild: 10. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í C-deild Alþingistíðinda. (2746)

39. mál, vörutollur

Jón Baldvinsson:

Jeg get ekki látið frv. þetta fara mótmælalaust til 2. umr.

Auðvitað er það gott og blessað að geta framleitt í landinu það, sem við þurfum að nota.

En að fara nú að koma á verndartolli, mundi áreiðanlegá verða til bölvunar fyrir landbúnaðinn, sem flm. bera fyrir brjóstinu og ætla sjer að vernda með þessu frv. Miklar breytingar hafa orðið til hins verra, síðan stríðið skall á. Sjerstaklega hefir vöruvöndun minkað. Nú er t. d. varla hægt að fá sæmilega gott íslenskt smjör, síðan rjómabúin lögðust niður. Sumar vörutegundir fullnægja eigi nálægt því eftirspurninni, t. d. mjólkin. Sá skattur er því alveg ófær. Háttv. frsm. (JS) gat þess, að tollurinn væri of lágur; mjer finst hann of hár. Mjer hefir reiknast svo til, að hann verði 5 aurar á hverja mjólkurdós, og dregur það sig saman fyrir þá, sem mikið þurfa að kaupa af þeirri vöru.

Vitanlega ætti landið að geta fullnægt mjólkurþörfinni, en það gerir það eigi enn, og því of snemt að tolla mjólkina.