01.03.1923
Neðri deild: 9. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í D-deild Alþingistíðinda. (3351)

27. mál, verðgildi íslenskrar krónu

Jakob Möller:

Í sjálfu sjer hefi jeg lítið að segja, því ræðurnar, sem haldnar hafa verið frá því í gær, gefa ekki mikið tilefni til andsvara. Hæstv. forsrh. (SE) virtist vera nokkuð óskýr, og hallast þó helst að því að lokum, að bankaráðið ætti að hafa æðstu stjórn bankans, enda er það ekki annað en það, sem alment er viðurkent, og því óskiljanlegir útúrdúrar hans um þetta mál. Jeg vil í því sambandi aðeins segja hæstv. forsrh. (SE) það, að ef hann, sem formaður bankaráðsins, ætlar sjer ekki að hafa á hendi þessa æðstu stjórn bankans, ætti hann alls ekki að vera að sitja í bankaráðinu. Það sem hann sagði um gengi krónunnar alment, var hins vegar svo í lausu lofti, að jeg þarf ekki að fjölyrða um það.

Hins vegar vil jeg leiðrjetta lítilsháttar misskilning milli okkar hv. 2. þm. Reykv. (JB). Þó það sje aðalatriðið fyrir mjer að stöðva gengið, er auðvitað ekki þar með sagt, að mjer sje sama um gengislækkunina síðustu. En munurinn er sá, að jeg skoða þetta aðeins sem bráðabirgðaráðstöfun, en gengið sje ekki raunverulega fallið fyrir langan tíma. Þegar meira berst að af gjaldeyri, þá hækkar gengið aftur og þá á að stöðva það. Og jeg legg meiri áherslu á þetta en að leiðrjetta strax augnablikshallann.