04.05.1923
Neðri deild: 57. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í D-deild Alþingistíðinda. (3504)
136. mál, endurskoðun löggjafarinnar um málefni kaupstaðanna
Jakob Möller:
Það var þegar tekið fram í framsögu málsins, að óheppilegt mundi að hafa föst ákvæði um þennan gjaldstofn, heldur yrði hitt rjettara, að rúmleg heimild yrði gefin til þessa, og bæjarstjórnir settu svo nánari ákvæði þar að lútandi. Jeg sagði og aldrei, að ekki mætti koma við lóðargjaldi, þótt lóðirnar væru ekki eign einstakra manna. Hitt sagði jeg, að það gjald kæmi þá öðruvísi niður.