25.04.1924
Efri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1656 í B-deild Alþingistíðinda. (1078)

73. mál, yfirsetukvennaskóli

Frsm. (Ingibjörg H. Bjarnason):

Eins og sjá má á frv. á þskj. 98, þá er frv. borið fram eftir ósk stjórnar ljósmæðrafjelagsins. Aðalbreytingamar í frv. háttv. Nd. eru þessar: Í fyrsta lagi, að námstíminn er lengdur um 3 mánuði, eða úr 6 mánuðum upp í 9 mánuði; í öðru lagi, að landlækni er gert að skyldu að kenna kauplaust við skólann og samkvæmt embættisstöðu sinni; í þriðja lagi, að þær námskonur einar fá styrk, sem skuldbinda sig til þess að þjóna ljósmóðurumdæmi að afloknu prófi ekki skemur en 3 ár samfleytt, og í fjórða lagi, að tala námskvenna skuli að jafnaði ekki vera hærri en 10–12. Þetta eru þá aðalbreytingar hv. Nd. á lögunum frá 1912.

Við nefndarmenn höfum ekki hreyft við ákvæðinu um námstímann í frv. hv. Nd., en hinsvegar höfum við gert þá athugasemd við 3. gr. frv., að núverandi landlæknir verði, þrátt fyrir ákvæði gr., látinn halda þeim sjerstöku launum, sem honum eru ætluð fyrir forstöðu skólans.

Þá hefir nefndin hækkað lágmark starfstíma ljósmæðra að afloknu prófi um 2 ár, úr 3 árum upp í 5 ár. Sumir álíta að vísu breytingu þessa óþarfa, og er slíkt auðvitað álitamál. En hækkunin er gerð eftir ósk kennara skólans. Þá hefir nefndin orðið ásátt um það að einskorða hámarkstölu námskvenna við töluna 12, en ekki 10–12, eins og gert er í frv., enda álítur nefndin, að talan megi ekki vera hærri, ef kenslan á að koma að verulegum notum. Af því leiðir, að nefndin hefir felt niður úr 7. gr. frv. orðin „að jafnaði“.

Um hækkun launanna þarf ekki að tala, þar sem þau eru í fjárlögunum. Kostnaðinn við breytingarnar mun ekki þurfa að óttast, þar sem fækkun námskvennanna mun vega upp á móti lenging námstímans.

Jeg vona, að frv., svo breytt, fái að ganga áfram í gegnum þessa hv. deild.