08.03.1924
Efri deild: 14. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í C-deild Alþingistíðinda. (1891)

65. mál, Alþingistíðindi, niðurfelling umræðuparts

Ingibjörg H. Bjarnason:

Það er ekki í fyrsta skifti, sem hv. 5. landsk. (JJ) hefir reynt að komast í kallfæri við mig, en það hefir reynst árangurslítið og mun reynast. Jeg sagði hv. þm. (JJ) það á götu í vetur, að hversu miklu rúmi og svertu sem Tíminn eyddi í að mannskemma sig á mjer, myndi jeg ekki skattyrðast við hann. Háttv. þm. ljet sjer á ýmsa lund ant um mig og framkomu mína í þinginu í fyrra, og gerir það enn, enda gamall siður, að karlmenn sýni konum þann riddarahátt, sem þeir eru færastir um. En þegar hv. þm. (JJ) fer að blanda því inn í þessar umræður, hve fylgispök jeg sje hv. 4. landsk. þm. (JM), get jeg ekki varist andmæla.

Frá því að jeg kom til vits og ára hefi jeg altaf haft ráð á því að hafa mínar eigin skoðanir og eigi verið „kaupakona“ eða „kaupamaður“ annara manna í nokkru máli, og hvað sem Tíminn eða önnur blöð segja, er þetta öllum kunnugt.

Jeg hefi aldrei gengið í samvinnuskólann og hefi því hvorki skap nje kunnáttu til að þrefa og þrasa um hvað eina, þótt jeg hinsvegar hafi oft þurft að taka á stillingu minni til að geta setið undir vaðli hv. þm. (JJ).