15.04.1924
Neðri deild: 51. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í C-deild Alþingistíðinda. (2143)

70. mál, ritsíma og talsímakerfi

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg vil þakka hæstv. atvrh. (MG) fyrir það, hve vel hann hefir tekið þessu frv. fyrir sitt leyti, en jafnframt skal jeg geta þess, að jeg taldi ekki neina vissu fyrir því, að Núpslínan yrði bygð árið 1925, heldur aðeins möguleika. Mjer er kunnugt um það, að áhugi hjeraðsmanna er svo mikill í þessu efni, að þeir vilja talsvert á sig leggja. Og þar sem um svo stutta leið er að ræða, þá er þeim ekki ókleift að leggja sjálfir fram svo mikið, að kostnaðurinn verði hverfandi fyrir ríkissjóð. Jeg veit til þess, að í sumar verður lögð stutt lína á ríkiskostnað, sem ekki stendur á fjárlögum. En eins og hv. 1. þm. S.-M. benti á, er til liður í fjárlögunum, sem ef til vill mætti verja í þessu skyni, þar sem er ekki um að ræða nema örfá þús. kr.

Jeg bið hv. þdm. sjerstaklega að gefa því gaum, að hjer er um að ræða unglingaskóla, sem er mjög ódýr landinu. Og það er eini alþýðuskólinn, sem ekki hefir símasamband, að Hvítárbakkaskólanum undanteknum. Símasamband er ekki aðeins þeim til hagræðis, sem eiga heima á staðnum, heldur þeim öllum, sem eiga börn eða skyldmenni í skólanum, og ekki síst þeim. Þetta er því ekki hagsmunamál Núps eins, heldur alls Vestfjarðakjálkans.

Jeg mun nú ekki eyða fleiri orðum um þetta mál, en það verð jeg að segja, að ólíkri meðferð sætir Staðarfell og Núpur, ef þetta frv. verður felt. Heim á Staðarfell var lagður langur sími, í því tilefni, að þar yrði seinna settur skóli, sem þó sennilega kemur seint. En á Núpi er skólinn þegar starfandi og hefir starfað mörg ár, en margfalt ódýrara er að leggja þangað síma. Jeg óttast ekki, eins og hv. þm. N.-Ísf., að hv. Ed. muni bæta svo mjög mörgu inn í frv., er það kemur til hennar, enda má þá slátra þeim breytingum hjer í þessari hv. deild seinna. Jeg sje því ekki fremur en áður neina ástæðu móti því, að frv. sje samþ.