25.04.1924
Neðri deild: 55. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í D-deild Alþingistíðinda. (2904)
103. mál, endurheimt ýmsra skjala og handrita
Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) heldur enn fast við það, að vínsalan muni aukast, ef fyrirkomulaginu við söluna verður breytt svo sem till. mín fer fram á. En mjer virðist, að hv. þm. hafi ekki lesið till. vel, þar sem hann er að tala um hundraðsgjald, sem útsölumaður eigi að fá. Í tillögunni stendur, að greiða skuli ákveðna þóknun fyrir afhendingu vínanna, enda sje ekkert gert til þess að auka söluna. Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) siglir því hjá þessu skeri, ef hann samþykkir till. Annars seildist þessi hv. þm. (JBald) nokkuð langt til röksemdanna, er hann var að tala um spjaldskrána, sem allir eru víst sammála um, að eigi hið bráðasta að detta úr sögunni. Því mun enginn hafa búist við, að spjaldskráin yrði á þennan hátt hafin til himna á dauðastundinni.
Jeg skýt því til hæstv. stjórnar, hvort hún sjái ekki tök á því að leigja húsnæði verslunarinnar fyrir skrifstofur, ef útsalan verður falin manni, sem nægan húsakost hefir, meðan ríkið er bundið leigusamningi um það húsnæði, sem nú er notað.