02.05.1924
Neðri deild: 61. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í D-deild Alþingistíðinda. (3010)

135. mál, rýmkun landhelginnar

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg skal játa það að jeg sje ekki þetta, sem hv. 3. þm. Reykv. (JakM) var að benda á. Jeg sje ekki eðlismuninn á flóalöggjöf Englendinga og hinu umrædda frv. um landhelgisbrot, sem hjer var nýlega felt af hv. deild. Englendingar svifta alla sína menn veiðirjetti á vissum stað, en frv. fór fram á það, að brotlegir skipstjórar einir mistu veiðirjett. Englendingar fara hjer lengra. Jeg vil svo ekki fara lengra í þetta mál, en það er gott, að hv. deild fái að heyra, að aðrar þjóðir hafa ekki hikað við að setja lög um sína eigin þegna, þó ekki gætu þau náð til þegna annara ríkja.