26.03.1924
Neðri deild: 33. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1608 í B-deild Alþingistíðinda. (902)

97. mál, landhelgissektir í gullkrónum

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Jeg vil geta þess viðvíkjandi ummælum háttv. þm. Borgf. (PO), að það er mín sök, að frv. hans hefir ekki fylgst með þessu frv. frá nefndinni. En það er ekki af því, að jeg sje því andvígur og skal jeg sjá um, að ekki verði dráttur á því úr þessu. Viðvíkjandi því, að hækka sektir fyrir seladráp á þann veg, að þær skuli greiða í gullkrónum, hygg jeg, að muni að litlu haldi koma. Þessi lagaákvæði eru svo gömul, að sektirnar eru þess vegna orðnar alt of lágar, vegna þess, að miðað er við löngu horfið peningagildi. Þess vegna beini jeg því til háttv. þm. Str. (TrÞ) að koma heldur fram með frv. um að hækka sektirnar fyrir seladráp, því þótt þessar lágu sektir yrðu metnar til gullverðs, mundu þær samt verða alt of lágar. Háttv. þm. Str. ætti því að taka þessa brtt. sína aftur, svo frv. mætti ganga fram eins og ekkert hafi í skorist.