05.05.1926
Efri deild: 67. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (1442)
26. mál, ritsíma og talsímakerfi
Frsm. (Einar Árnason):
Frv. þetta er hingað komið frá hv. Nd. og er einskonar samsafn af till. frá ýmsum hv. þm., og er þar gert ráð fyrir símalagningum í 13 sýslum. Mest eru þetta aukalínur út frá aðallínunum til sveita. Samgmn. þessarar hv. deildar hefir ekki sjeð ástæðu til annars en að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Sjer hún enga ástæðu til að gera upp á milli lína þeirra, sem nefndar eru í frv. Held jeg, að mjer sje óhætt að fullyrða, að landssímastjóri hafi fengið þær allar til umsagnar og að orðalag 1. gr. sje ákveðið í samráði við hann. Allar þessar línur kosta vitanlega stórfje, en auðvitað líða mörg ár áður en flestar þeirra verða lagðar, og það því fremur, sem enn eru ólagðar margar línur í eldri símalögum. Flestar þeirra verða auðvitað lagðar á undan þessum viðbótum. Vona jeg, að hv. deild leyfi þessu máli að hafa greiðan gang.