14.05.1926
Efri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í D-deild Alþingistíðinda. (3312)

115. mál, sjúkratryggingar

Einar Árnason:

Þessi till. mun hafa verið afgr. frá hv. Nd. í dag. Þess vegna hefir þessari hv. deild ekki gefist neinn kostur á að athuga till. En þar sem nú er svo komið, að við erum á seinustu mínútum þessa þings, og því ekki einu inni kostur þess að ræða málið í deildinni, þá verður naumast til þess ætlast, að þessi deild geti samþ. till. eins og hún er. Hinsvegar er máli þessu þann veg farið, að sjálfsagt er, að því sje sint, og þar sem hæstv. atvrh. (MG) hefir nú lofað að taka það til rækilegrar íhugunar og vonar að geta lagt fyrir næsta þing frv. um þetta efni, þá geri jeg það að till. minni, að málinu verði vísað til hæstv. stjórnar.