02.03.1926
Efri deild: 17. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (769)

16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða

Einar Árnason:

Jeg gerði örfáar athugasemdir við 2. umr. þessa máls hjer í deildinni, aðallega þó við eina brtt. nefndarinnar. Fanst mjer þá á tóninum í hv. frsm. (GuðmÓ), að hann væri móðgaður af ummælum mínum, af því að jeg hefði ekki farið nógu virðingarverðum orðum um brtt. nefndarinnar. Undrar þetta mig stórlega, því að ummæli mín voru mjög hógvær, og jeg get fallvissað háttv. frsm. um það, að jeg hafði enga tilhneigingu til þess að móðga nefndina. Aðeins þetta, að jeg hafði aðra skoðun á einu atriði en nefndin sjálf og meiri hluti þessarar deildar, sem sje um rjett kvenna til þess að skorast undan kosningu til bæjar- og sveitarstjórna. En jeg veit, að tilgangslaust er að tala um þetta hjer, því að þessi skoðun mín mun eiga formælendur fá hjer í deildinni. Það virðist vera kapphlaup um það í deildinni að búa sem ramlegast um skyldur kvenna að taka við kosningu í þessum málum, því að ekki hafa komið fram minna en þrjár brtt. sama efnis. En rökin, sem færð hafa verið með þeim, finst mjer ærið veigalítil; þau hafa mest verið upphrópanir: „skyldur“ og „rjettindi“! og aftur „rjettindi“ og „skyldur“!

Háttv. 4. landsk. fullyrti, að aldrei hefði komið fyrir, að karlmönnum hefði verið þröngvað í hreppsnefndir eða til annara opinberra starfa. Þetta er ekki rjett. Og það sýnir jafnframt, hversu nauðalítið sumir menn þekkja til þessara mála í sveitunum. Jeg gæti nefnt mörg dæmi. Og hvað sjálfan mig snertir, þá var mjer í fyrstu þröngvað inn í hreppsnefnd, algerlega móti mínum vilja, því lagalega gat jeg ekki undan skorast. Ástæðurnar fyrir því, að margir menn vilja ekki taka við opinberum störfum í sveitum, eru margar. Má þar til nefna, að þau eru erfið og jafnframt illa launuð; oftast ekkert annað að hafa fyrir þau en vanþakklæti.

Það er fjarri öllum sanni að bera þessi mál saman í sveitum og kaupstöðum. Í kaupstöðum þarf ekki annað en ganga stuttan spöl milli húsa, eða tala í síma við samnefndarmennina, eins og t. d. hjer í Reykjavík. Er það alt annað en að fara langar og erfiðar ferðir, oft í misjöfnuveðri og færi, eins og vill eiga sjer stað á útkjálkum þessa lands. Getur og vel komið fyrir, að fara, þurfi alt að 30 km. í ófærð og illviðri til þess að komast á hreppsnefndarfund. Undir slíkum kringumstæðum er því óhugsandi, að kvenfólk gæti sótt fundi. Má því búast við, að fyrir geti komið, að nefndin verði ekki fullskipuð á fundum, ef konur fara alment að eiga sæti í hreppsnefndum.

Jeg geri ráð fyrir, að það sje tilætlunin hjá háttv. 4. landsk. og öðrum, sem sækja fastast, að konur skuli skyldugar til að taka þátt í öllum opinberum störfum í þágu sveitarinnar, að það taki ekki aðeins til hreppsnefndarstarfa, heldur allra opinberra starfa, sem inna þarf af hendi. Undir þetta telst þá að sjálfsögðu starf forðagæslumanna, en það er alls ekki svo lítið. Forðagæslumaðurinn verður að ferðast bæ frá bæ tvisvar á vetri. Hann verður að koma í hvert útihús og skoða hverja skepnu. Hann verður að koma í hverja heytóft og oft að troðast í gegnum þröngar geilar. Jeg verð að segja, að jeg tel þetta tæplega kvennaverk. Jeg vil líka skjóta því til háttv. landbn. að athuga þetta atriði í sambandi við kynbótafrv. það, sem nú er hjer til meðferðar. Jeg er þeirrar skoðunar að konur eigi að hafa þau fríðindi fram yfir karlmenn að vera lausar við svona störf. Jeg býst við, að þetta hafi ekki byr hjer, en það breytir í engu minni skoðun.

Að því er snertir brtt. á þskj. 76, þá mun jeg greiða atkvæði með öðrum lið hennar, en móti hinum. Teldi jeg greinina þann veg komast í sitt upprunalega horf, sem vel mátti við una.