06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (797)
16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða
Einar Árnason:
Mjer er nærri óskiljanlegur þrái hv. þdm. að koma nú enn með þetta ákvæði. Eins og öllum er kunnugt, þá er nú ekki langt orðið eftir þingtímans. Og nú vil jeg spyrja: Hvað ætlast hv. allshn. fyrir með þessu? Það er fyrirsjáanlegt, að ef till. er samþykt, verður frv. að fara í sameinað þing, og til þess að geta náð samþykki þar þarf 2/3 atkv. Er það þá meiningin, ef þeir fá ekki þetta ákvæði inn í lögin, að þeir ætli þá að greiða atkvæði á móti málinu og fella það? — Hv. 4. landsk. (IHB) sagði áðan í ræðu sinni, að allar konur á landinu heimtuðu þetta. Þessu verð jeg að mótmæla. Jeg get hugsað, að þær sjeu nokkuð margar hjer í Reykjavík, sem heimta þetta, enda hefir það komið skýrt fram, að einhver kvenfjelög hafa sent áskoranir um þetta. En það sýnir ekki annað en það, að hægt er að láta talsverðan vind rísa út af hjegóma. Hitt veit jeg, að hjer eru til fjelög, sem eru þessu mótfallin.
Jeg mun svo ekki fjölyrða meira um þetta, en mjer virðist, að ekki sitji vel á háttv. þdm. að stefna þessu máli í tvísýnu með óþörfu kappi.