08.03.1926
Efri deild: 22. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (954)
38. mál, löggilding verslunarstaða
Einar Árnason:
Rjett í þessu hefir verið útbýtt brtt. hjer í hv. deild frá mjer og nokkrum öðrum. Eru þær fluttar fyrir tilmæli hv. þm. Barð. (HK). Hafði hann hugsað sjer að flytja brtt. þessar við frv. meðan það var í hv. Nd., en fjekk ekki þær upplýsingar, er hann þurfti, fyr en eftir að málið var afgreitt frá deildinni.
Við flm. sáum ekki ástæðu til að hafa á móti því, að Melstaður skuli löggiltur verslunarstaður. Þó getur komið til mála, að hv. deild vilji setja málið í nefnd, til þess að fá frekari upplýsingar, sjerstaklega hjá hv. þm. Barð. Og fari svo, finst mjer rjett að fresta atkvgr. um brtt. þangað til við 3. umr.