01.04.1927
Neðri deild: 44. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (1410)

115. mál, bankavaxtabréf

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vil leyfa mjer að þakka hv. þm. N.-Þ. (BSv) og hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) fyrir þau orð, er þeir ljetu falla um brtt. mína á þskj. 271. Jeg vil taka það fram, að till. mín er borin fram af sömu hugsun og kom fram í ræðum þeirra, en ekki af því að jeg álíti, að þetta form væri betra en annað, sem nær sama tilgangi. Jeg álít það beinlínis siðferðilega rangt að samþykkja þetta frv., ef sú hugsun kemur ekki fram í því.

Hæstv. ráðh. (JÞ) sagði, að jeg bæri með till. minni aðallega umönnun fyrir húseigendum hjer í bæ. Jeg þarf ekki að svara því. En jeg hafði til frv. um þetta hvað ræktunarsjóðinn snerti, en að athuguðu máli áleit jeg það rangt að binda þetta við ræktunarsjóðinn einan, heldur ætti það einnig að ná til allra fastra lána í 5., 6. og 7. flokki. Út af orðum hæstv. ráðh. vildi jeg mega spyrja hann, hvort hann vildi vera með frv., er jeg bæri fram sjerstaklega um ræktunarsjóðinn. Hæstv. ráðh. talaði um það, að jeg í allri vinsemd tæki aftur tillögu mína. Hæstv. ráðh. hefir fyr æft sig í því að biðja hv. þm. um þá vinsemd, að þeir fjellu frá till. sínum, og það hefir borið góðan árangur. En hann má vita það, að hann tekur mig ekki sömu tökum.