17.05.1927
Neðri deild: 78. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1922 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)

134. mál, seðlainndráttur Íslandsbanka

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg geri ráð fyrir, eins og þetta mál liggur fyrir og er flutt, að jeg greiði atkvæði með því, að frv. verði að lögum. En jeg vil láta þess getið, að jeg álít það ekki rjetta aðferð að bera þetta mál fram rjett undir þingslitin. Það kemur fyrst fram, þegar þingið er búið að sitja 98 daga, og það er ætlast til, að það sje afgreitt með afbrigðum á einum degi. Jeg held líka, að það hafi verið alger óþarfi að haga þessu þannig, því að bæði stjórn bankans og hæstv. ráðh. (JÞ) hefir verið ljóst miklu fyr, að leita þyrfti til Alþingis um þetta mál. Það er fjarri því að vera þinglegt að láta afgreiðslu málsins bera svona að. Jeg verð að segja sem einn af hinum yngri þingmönnum, að mjer þykir ekki svo fallegur svipur sem skyldi yfir þessari virðulegu samkomu, að við skulum þurfa að taka þátt í flaustursverkum við afgreiðslu þýðingarmikilla mála, og á jeg þar við Landsbankafrv. og þetta frv. Og þar við bætist, að nú er ætlast til, að þessi deild taki nær því umhugsunarlaust afstöðu til breytinga á stjórnarskipunarlögum landsins.