06.04.1927
Neðri deild: 48. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)
3. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg vildi aðeins benda hæstv. forseta á það, að við 2. umr. þessa máls, þá var 2. gr. frv. samþ. með 14 shlj. atkvæðum. Jeg fyrir mitt leyti álít þetta löglega samþykt. En þegar eins stóð á í öðru máli hjer í deildinni, þá vildi hæstv. forsrh. (JÞ) vjefengja, að þetta væri löglegt. Því vil jeg mælast til þess, að hæstv. forseti úrskurði um þetta, því að þá gildir auðvitað sama um þá atkvæðagreiðslu, sem hæstv. ráðh. vjefengdi áður.