17.05.1927
Neðri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3604 í B-deild Alþingistíðinda. (2211)
2. mál, stjórnarskipunarlög
2211Tryggvi Þórhallsson:
Jeg vildi geta þess, að stjórnarskrárnefndin hefir ekkert tækifæri haft til þess að athuga þetta mál nú. Jeg get mint á það, að hv. Ed. hafði þetta mál í sínum höndum 2 fyrstu mánuði þingsins. Síðan höfðum við það til meðferðar í 4 vikur, og var frv. þá endursent til hv. Ed. Nú að 13 dögum liðnum er því fyrst útbýtt hjer aftur. Og nú á að greiða atkv. um það eins og það kemur frá hv. Ed. án þess að athuga það nokkuð.
Síðan málið kom prentað, hafa verið sífeldir fundir, og jeg álít það alls ekki forsvaranlegt að ganga sem blindandi að þessari atkvgr. Sem formaður stjórnarskrárnefndar óska jeg þess, að nefndin fái tíma til þess og tækifæri að líta á málið.