08.03.1927
Neðri deild: 24. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í C-deild Alþingistíðinda. (2250)

10. mál, heimavistir við Hinn almenna menntaskóla

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg skal ekki misnota heimild hæstv. forseta með því að tala langt mál að þessu sinni. Jeg vildi að eins taka það fram, að hæstv. atvrh. (MG) hefir enga aðstöðu til þess að setja sig í kennarastól og segja okkur, hvað á að gera 1928. Jeg sagði það áðan, og skal endurtaka það, að fjárlög eiga jafnan að gefa rjetta mynd af því, hver útgjöld þjóðarinnar eiga að vera á hverju ári, og að jeg er því andstæður, að stjórnin geti dembt inn miklum framkvæmdum utan fjárlaga. Það voru ekki mín orð, að engu munaði, þótt framkvæmdin í þessu efni drægist um eitt ár. Mjer fanst það ekki fara vel í munni íhaldsráðherra, að hann bæri mjög fyrir brjósti fátæka sveitapilta. Fátækum sveitapiltum mun aldrei standa neitt gott úr þeirri átt, eða frá þeim, sem hafa kastað sjer í fang þeirra stóru í kaupstöðunum.