06.04.1927
Neðri deild: 48. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í C-deild Alþingistíðinda. (2509)
11. mál, útrýming fjárkláða
Tryggvi Þórhallsson:
Út af því, sem hv. frsm. meiri hl. sagði um það, að meiri hl. landbn. hefði meiri þekkingu á þessu máli heldur en jeg, þá vil jeg spyrja hann að því, af hverju menn eigi að marka þessa þekkingu. Á að marka hana af því, sem þessi meiri hl. ber fram nú, eða því, sem hann bar fram í fyrra?
Jeg verð að játa, að jeg ber minni virðingu fyrir þeirri þekkingu hv. meiri hl. landbn., sem fram hefir komið í þessu máli nú en í fyrra.
Hv. frsm. meiri hl. sagði, að meiri hluti bænda væri með því frv., sem meiri hl. landbn. hefir borið fram. Það er nú í sjálfu sjer ekkert aðalatriði, heldur hitt, hvað bændum er fyrir bestu. En bændur eru ekki fylgjandi hv. meiri hl. landbn. í þessu máli. Sjest það best á því, að fulltrúar bænda, sem saman komu nú fyrir skemstu á búnaðarþingi, voru í aðalatriðum fylgjandi stefnu þessa frv., sem hjer liggur fyrir.
Um efni málsins skal jeg ekki fjölyrða. En jeg hefi þann metnað fyrir bænda hönd, að jeg vil ekki, að það komi oftar fyrir, að lesnar sjeu hjer upp á Alþingi aðrar eins skýrslur eins og nú, að kláðinn sje altaf að útbreiðast.