31.03.1927
Neðri deild: 43. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í C-deild Alþingistíðinda. (2938)

72. mál, fiskimat

Forseti (BSv):

Það hefir að vísu einu sinni komið fyrir, að svo teygðist úr stuttri athugasemd manns, sem var einn á móti heilli nefnd, að úr henni varð hálftíma ræða, en hinsvegar fæ jeg ekki sjeð, að slíkt eindæmi valdi neinni hefð hjer í deildinni, jafnvel þótt sá sje talinn „sjerfræðingur“ í þeim efnum, sem svo hafi litið á.