25.04.1927
Sameinað þing: 7. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í D-deild Alþingistíðinda. (3508)
114. mál, Landsbanki Íslands setji á fót útibú í Vestmannaeyjum
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg ætla með örfáum orðum að gera grein fyrir því, hvers vegna jeg verð að vera á móti þessari till. Og er þá fyrst að segja, að jeg held það sje með öllu óforsvaranlegt, ef þingið færi nú að ýta undir stjórn og Landsbanka um að koma á fót útibúi í Vestmannaeyjum, þegar litið er á, hvernig þau útibú hafa gefist, sem Landsbankinn hefir komið á stofn. Þau eru nú 4 starfandi, þessi útibú frá Landsbankanum, og er afkoma þeirra sú, að eitt hefir verið rekið svo að segja með engu tapi, annað með litlu tapi enn sem komið er, en má þó búast við að aukist, en um hin tvö útibúin er það að segja, að á rekstri þeirra skiftir tapið miljónum króna.
Ef svo er litið, í annan stað, á það almenna ástand í landinu nú, þá er síst ástæða til að mæla með slíkum till. sem þessari, þar sem það er vitað um þessi útibú, að Landsbankinn hefir orðið að leggja þeim til stórkostlega mikið fje, öllum nema einu. Það geta allir sjeð, sem kynna sjer bankareikningana, að það skiftir miljónum kr. Og að fara nú að stofna til slíks útibús sem þessa, eins og nú standa sakir, nær ekki nokkurri átt frá mínu sjónarmiði.
Þriðja atriðið, sem og er aðalatriðið í þessu máli, er það, að ef Landsbankinn hefir yfir að ráða svo miklum fjármunum — nokkrum hundruðum þúsunda króna eða miljón —, sem hann gæti beint í einhverja ákveðna átt, þá álít jeg, að þeim peningum eigi ekki að beina til Vestmannaeyja eða yfirleitt til sjávarins. Jeg álít, að það, sem gerst hefir á síðasta ári og árum, hafi sýnt það greinilega, að við eigum ekki að sökkva fleiri miljónum í bili á því sviði.
Framtíð Íslands er betur trygð, ef við reynum að beina því fjármagni, sem við kynnum að hafa, í aðra átt. Það er til stofnun, sem heitir Ræktunarsjóður, sem þarf miklu meira fjármagn en það, sem við höfum nú yfir að ráða. Og að svo miklu leyti sem jeg greiði atkv. með áskorunum til Landsbankans um að beina fje í ákveðna átt, þá vil jeg beina því í aðra átt en þessi till. fer fram á.