11.03.1927
Neðri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (359)
73. mál, vörutollur
Flm. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg þarf sem engu að bæta við greinargerð frv. Þessi tillaga var borin fram á búnaðarþinginu af einum forgöngumanna landbúnaðarins, og mælti þingið einróma með því, að hún yrði borin fram á Alþingi. Jeg vona, að menn sjeu sammála um það, að það eigi ekki með vörutollslögum að stuðla að því, að menn fóðri óhagsýnilega skepnur sínar. Hjer er um fóðurbætistegund að ræða, sem þeir bændur geta ekki verið án, sem framleiða mjólk til sölu, án þess að fóðra óhagsýnilega. Sjerstakur tollur á þessa vöru er ekkert annað en hvöt til þess að fóðra óhagsýnilega.
Jeg leyfi mjer að leggja til, að málinu verði vísað til fjhn.