23.03.1927
Neðri deild: 37. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

56. mál, sandgræðsla

Tryggvi Þórhallsson:

Þetta mál fer að sjálfsögðu til landbn. En jeg vil aðeins beina því til hv. nefndar, að hún afli sjer nægilegra upplýsinga áður en hún afgreiðir það. Einkanlega þarf 2. gr. athugunar. Það mundi leiða af samþykt þeirrar greinar eins og hún er, að allmikið meira af fje því, sem veitt er til sandgræðslunnar, færi í kostnað vegna hliða en nú fer. Því fleiri sem hliðin eru á fjölfarinni leið, því lengra verður að girða, því að undir slíkum kringumstæðum verður að girða meðfram veginum beggja megin milli hliðanna. En það verður að leggja áherslu á, að þessu fje sje ekki varið til óþarfa, og það má ekki horfa í, þótt einhver lítill krókur verði á leið manna vegna sandgræðslugirðinga.

Jeg skal geta þess, að bæði sandgræðslustjóri og Búnaðarþing Íslands telja of langt gengið með þessu frv., og því þykir mjer rjett, að nefndin afli sjer sem bestra upplýsinga um þetta atriði, áður en hún skilar af sjer og leggur frv. fram til samþyktar.