17.05.1927
Sameinað þing: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3647 í B-deild Alþingistíðinda. (79)

Dansk-íslensk ráðgjafarnefnd

Benedikt Sveinsson:

Jeg vil leyfa mjer að spyrja hæstv. forseta, hvort eigi verði að sjálfsögðu hlutfallskosning um val nefndarmanna. Sýnist mjer eftir því, sem hjer blæs nú, að ekki mundi vanþörf á öruggum sjálfstæðismanni í nefndina, og mun jeg því bera fram lista í því skyni. (Forseti MT: Það verður viðhöfð hlutfallskosning).