19.04.1927
Neðri deild: 55. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (859)
111. mál, sala á Hesti í Ögurþingum
Magnús Jónsson:
Jeg vil minnast nokkrum orðum á 2. brtt. hv. allshn. Jeg held, að nefndin hafi ekki athugað það nógu vel, hvað hjer er um að ræða, sem sje „beneficum“ prestsins. Eitt prestakall landsins, Staðarhólsþingin, hafa nú um skeið verið prestslaus, vegna þess eins, að jörð sú, sem prestinum er ætluð til ábúðar, er óviðunanlegt kot. En ef sæmileg jörð fengist, þá mundi þegar fást þangað prestur.
Hjer er um jörð að ræða, sem er óheppilega í sveit komið fyrir prest, og því gott að selja hana. En það má ekki gera, nema einmitt með það fyrir augum að fá aðra betri handa prestinum, því að ekki er það góð lausn á málinu að setja hann niður í Súðavík.
Jeg vil því eindregið mæla með því, að annað „beneficum“ verði keypt, því að þetta er annað og meira en hreint og beint peningaspursmál. Vil jeg láta koma fram þingviljann í þessa átt með því að leggja upphæðina til hliðar.