18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í D-deild Alþingistíðinda. (3780)
148. mál, skólasjóður Herdísar Benediktsen
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Jeg, hefði getað búist við, að hv. flm. hefði komið með þessar athugasemdir og beint þeim þá — ekki til mín — heldur þeirrar stjórnar, er tók við gjöf Magnúsar Friðrikssonar. Öll þessi rekistefna er bygð á reginmisskilningi. Þegar Jón heitinn Magnússon tók við Staðarfellsgjöfinni, þá setti gefandi það skilyrði, að Herdísarskólinn skyldi settur að Staðarfelli. Það samþ. ríkisstjórnin fyrir sína hönd með því að taka við gjöfinni, og Alþingi einnig, því það var borið undir fjvn. þingsins, og síðar með því að samþ. heiðurslaun til þeirra Staðarfellshjóna. Á þeirri stundu, er ríkið tók við Staðarfellsgjöfinni, var því slegið föstu, að Herdísarskólinn átti að standa á Staðarfelli. Um það var ekki deilt, síður en svo.
Jeg skal ekki segja, hvort Jón heitinn Magnússon hefir borið þetta aðalatriði undir sýslunefndirnar í Vestfirðingafjórðungi. En jeg vil slá því föstu gagnvart þáltill., að hjer er ekki nema ein leið opin fyrir Alþingi og stjórnina, sú, að framkvæma samninga Jóns heitins Magnússonar um að Herdísarskólinn skuli standa á Staðarfelli.
Jeg hefi ekkert gert í þessu máli ennþá. En stjórnin lítur svo á, að hún sje bundin við gerða samninga þeirra Jóns Magnússonar og Magnúsar Friðrikssonar. En það hafa engar ráðstafanir verið gerðar í þessu efni og hv. þm. getur verið óhrædd um það, að hnígi núv. stjórn að því ráði að framfylgja samningnum, þá mun verða gætt allra þeirra forma, er samkvæmt lögum þarf að gæta.