18.05.1929
Efri deild: 76. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í D-deild Alþingistíðinda. (3783)
148. mál, skólasjóður Herdísar Benediktsen
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Það er rjett skilið hjá hv. þm. Snæf., að staðurinn er ákveðinn af Jóni heitnum Magnússyni, en það var eftir að ákveða starfsháttu skólans og hvenær hann ætti að taka til starfa. Hinsvegar virðist það vaka fyrir hv. 2. landsk. að rífa upp gjöf Magnúsar Friðrikssonar og eyðileggja alt, sem gert hefir verið í málinu. Jeg hefi ekki kynt mjer, hvort Jón heitinn Magnússon hefir borið þetta undir viðkomandi sýslunefndir, en tel þó víst, að hann hafi ekki gert það. Úr því verður ekki bætt, en mjer finst það koma úr hörðustu átt, ef vinir hans verða fyrstir til að gera lítið úr störfum hans að honum látnum.