27.04.1929
Neðri deild: 55. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1662 í B-deild Alþingistíðinda. (797)

16. mál, fjárlög 1930

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg þarf ekki að leiðrjetta nema lítið eitt af ræðu hv. 2. þm. G.-K., því að hann reyndi ekki til að hrekja nema lítið eitt af því, sem jeg sagði. Jeg hjelt því fram, að Hafnarfjarðarkaupstaður verði að bera kostnaðinn af Flensborgarskóla hlutfallslega við önnur hjeruð, sem greiða framlög til sinna skóla. Þessu hefir hv. þm. ekki mótmælt, og ekki heldur, að þetta sje einkafyrirtæki, sem eigi enga heimtingu á því að verða kostað af ríkinu. Ef hv. þm. hefði athugað þá hækkun, sem gerð er á þessum gjaldalið, þá hefði hann mátt vita, að fræðslumálastjóri hefir úthlutun fjárins á hendi og að Flensborgarskóli hefði þá eflaust mátt vel við una, þar sem sá maður hefir þegar fengið viðurkenningu og traustsyfirlýsingu frá hv. 2. þm. G.-K. En hv. þm. lætur sjer ekki nægja með það, heldur krefst hann meira, það er að segja, hann vill láta þann skóla hafa forrjettindi, sem hann er nú talsmaður fyrir. Þó þessi hv. þm. virðist hafa mikla löngun til þess að bæta skólann, hefir hann ekki veitt málinu í nýjan og betri farveg eða heimsótt hann til að sjá útlit hans, og því geri jeg fyllilega ráð fyrir, að hann hafi ekkert vit á málinu. Það kemur ekki vel heim, að sá maður, sem gert hefir kröfu um það, að skólinn fái nýtt hús og betri aðstöðu í alla staði, sje fjandmaður skólans. Jeg benti fyrstur manna á það, að Hafnfirðingar ættu að halda 50 ára afmæli skólans hátíðlegt, og vissi jeg þá ekki til, að neitt slíkt væri í uppsiglingu, en eftir fundinn var fjelag stofnað, sem vinnur að því, og er það vel farið. Það bendir því heldur ekki til, að sá maður, sem hefur slíka umbótastarfsemi, sje fjandmaður skólans. Það ástand, sem verið hefir, getur ekki lengur staðist, en stj. hefir ekki haft vit á því fyr að gera þær kröfur til hjeraðanna, að þau sjái sómasamlega um skóla sína. — Þá hjelt hv. þm. því fram, að jeg þekti ekki gjafabrjef Þórarins Böðvarssonar og þá samninga, er við það væru bundnir, en ef hv. þm. hefði athugað fjárl. frá þeim tíma, þá hefði honum máske skilist, að Hafnarfjörður á að taka sinn þátt í kostnaðinum, og þá hefði hann sannfærst um, að hann fer villur vegar.