29.01.1930
Neðri deild: 8. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í C-deild Alþingistíðinda. (1015)
28. mál, raforkuveitur utan kaupstaða
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það eru nokkur einstök atriði í ræðum hv. 1. flm. og hv. 1. þm. Reykv., sem ég vil víkja að nokkrum orðum. Hv. flm. spurði, hvenær vænta mætti álits n. þeirrar, er þetta mál hefði til meðferðar. Um það get ég ekki sagt með fullri vissu, en eigi mun þó á löngu líða, áður en bráðabirgðaálit verður lagt fram hér í þinginu. Þó ber þess að gæta, að hér er ekki um heildarálit að ræða, heldur um grundvallaratriði málsins og það, á hvern hátt sé heppilegast að vinna að framkvæmdum og á hvaða grundvelli ríkið á að taka þátt í þeim.
Hv. flm. fór ekki rétt með orð mín, að þetta væri „luksus“ sveitunum til handa. Það hefi ég aldrei sagt. Eða heldur þm., að nokkrum dytti í hug að kalla t. d. húsbyggingar, sem lán eru veitt til úr Byggingar- og landnámssjóði, „luksus“? Ég líkti einungis þessu máli við Byggingar- og landnámssjóðinn og við verkamannabústaðina, sem þingið hafði til meðferðar í fyrra. Ég hirði svo ekki um að svara frekar þessari rangfærslu hv. þm.
Þá talaði hv. þm. um áætlanir almennt og taldi þær lítils virði. Það má vel vera, að hv. þm. hafi rétt fyrir sér. En ég vil spyrja hv. þm.: Hver er allsherjarreynsla um áætlanir hinna svokölluðu sérfræðinga? Sú, að áætlanir þeirra eru hér um bil undantekningarlaust of lágar. Í langsamlega flestum tilfellum fer kostnaður fyrirtækja langt fram úr áætlun verkfræðinganna. Þetta er allsherjarreynslan um þessa hluti. M. ö. o., áætlanir má skoða sem lágmark, en lítils virði hvað efri takmörkin snertir. (MG: Hver bjó til áætlunina í fyrra? Ekki var það verkfræðingur). Það var maður í bæjarins þjónustu, en ekki landsins, eins og hv. þm. getur séð í Þingtíðindunum.
Hv. þm. hafði góð orð um, að hann og hans flokkur væri fús til að vinna með okkur að fjáröflun til þessara framkvæmda. Er það vel farið, og horfir þá ekki óvænlega um framgang þessa máls, ef báðir höfuðflokkarnir leggjast á eitt um framkvæmdir. Á mér eða mínum flokki skal ekki standa til þess að gera allt, sem unnt er, fyrir málið, strax þegar við höfum séð till. þeirra manna, sem bezt hafa vit á þessum málum.
Hv. 1. þm. Reykv. teygði lopann, sem hans er vandi, en var þó mun skemmtilegri en endranær. Hann gaf í skyn, að við myndum vilja fara aðra leið en flm. frv., til þess að láta þá ekki hafa heiðurinn af frumkvæði þessa máls. Þetta er rangfærsla. Ég sló engu föstu um, hvaða leiðir yrðu farnar, en lagði höfuðáherzlu á ítarlegri rannsókn og athugun. En ef hv. þm. heldur, að við viljum fara aðra leið, þá er það af því, að hann hefir grun um, að hans leið er ófær.
Þá kem ég að öðru atriði í ræðu hv. 1. þm. Reykv., sem mér líkaði mjög illa. Hann talaði um rafveitur einstakra manna til sveita, sem reistar hafa verið fyrir tilstilli nokkurra merkra manna í Skaftafellssýslum, og fór niðrandi orðum um. Ég vil segja það, að þessir menn, sem unnið hafa óeigingjarnt og mjög merkilegt starf, eigi annað skilið en að þurfa að sæta niðrandi sleggjudómum af hálfu manna eins og hv. 1. þm. Reykv., sem ekki hefir hið allra minnsta vit á slíkum málum. Situr sízt á þeim hv. þm. að reyna að kasta rýrð á þessa náttúruhögu menn í Skaftafellssýslum; honum væri sæmra að ganga í skóla hjá þessum mönnum og læra af þeim marga nytsama hluti, svo sem óeigingirni og heiðarleik í opinberum störfum.
Hv. þm. sagði skemmtilega sögu af Arnóri og Gísla. Það kann að fara svo í þessari hv. deild, að Arnór taki að lokum í nefið hjá Gísla, en hins vil ég þá geta, líka í spaugi, að ég held, að svo hafi farið í Skagafirðinum, að Arnór hafi ekkert rafmagn átt að fá eftir þeirri áætlun, sem fyrir lá.
Ég vil að lokum beina því til hv. nefndar, sem ég tel víst að verði fjhn., að hún athugi þetta mál sem bezt, einkum frá fjárhagslegu sjónarmiði; sérstaklega hvernig aflað yrði fjár til þessara framkvæmda. Ég tel þess engar líkur, að málið verði leyst á þeim grundvelli, sem hv. 1. flm. benti á í ræðu sinni, nefnilega að draga fé frá öðrum framkvæmdum í landinu, svo sem brúargerðum, síma- og vegalagningum. Slíkt er fásinna meiri en orðum er eyðandi að. Við megum heldur ekki draga úr fjárveitingum til rjómabúa, fjárræktar, jarðræktar né annara búnaðarframkvæmda. N. verður að koma auga á einhverjar aðrar leiðir til fjáröflunar, ef nokkuð á að verða úr framkvæmdum. Ég er reiðubúinn til samvinnu um fjáröflun til þess, að myndarlega verði hafizt handa, en ella ekki. Hv. flm. vilja gera þetta fyrir afgangsfé. Hvílíkur barnaskapur! Eru mennirnir að gera að gamni sínu? Eða er þetta skollaleikur fyrir þjóðinni? Þeim sem þetta er alvörumál, er ljóst, að þetta verður að gerast myndarlega; það verður að vera myndarbragur yfir öllum framkvæmdum málsins frá upphafi. Þetta vil ég leggja hv. þdm. ríkt á hjarta.