04.04.1930
Neðri deild: 71. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1081)
5. mál, sveitabankar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Út af þeim ummælum, sem hér hafa fallið um þetta mál, skal ég taka það fram, að við samning reglugerðarinnar mun ég hafa stjórn Búnaðarbankans með í ráðum og taka þær bendingar til greina, sem hér hafa komið fram. Að öðru leyti óska ég, að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir.