25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1878)

13. mál, Skeiðaáveitan o.fl.

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Skeiðaáveitan er gamall og nýr gestur hér á Alþingi. Nú síðustu árin hafa 5 þing haft um það að fjalla, að létta undir með greiðslur, en síðasta Alþingi veitti stj. heimild til að skipa n. og gera frekari ráðstafanir í þessu máli. Landsstj. skipaði síðan þessa n., og hefir hún að mínu áliti leyst verk sitt mjög vel af hendi, og samið þetta frv. og ítarlega grg. þess. N. þessi hefir unnið í samráði við landsstj., en mál þetta hefir margar hliðar og krefst ítarlegrar athugunar, og ég hygg, að n. hafi farið rétta leið til að sigla fyrir öll þau sker, sem voru á vegi hennar. Og nú verður þetta mál að fá endanlega afgreiðslu.

Ég ætla ekki að fara út í einstaka liði, því að það yrði ekki annað en endurtekning grg. Ég vil aðeins geta þess, að mönnum kann að virðast sem landbn. eigi að hafa mál þetta til meðferðar, en ég hefi komizt að þeirri niðurstöðu eftir nákvæma íhugun, að fjvn. á að fjalla um þetta mál, þar sem aðalatriði málsins er till. um fjárframlög úr ríkissjóði. Það mælir og með því, að mál þetta verði sent til fjvn., að einn þeirra manna, sem hefir átt sæti í milliþinganefndinni, á þar einnig sæti, og svo hv. 1. þm. Árn., þannig að búast má við, að málið fái þar góða afgreiðslu.