31.03.1930
Neðri deild: 67. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (198)
1. mál, fjárlög 1931
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það var í fyrravor, þegar hann var hér á ferðinni sænski flugmaðurinn, að það flugu ýmsar sögur um tilraunir hans til að komast héðan í burtu, og ein var sú, að í eitt skipti var vélin svo afturþung, þegar hann fór, að hann varð að snúa aftur. — Mér finnst, að hvað þessar eldhúsdagsumr. snertir, þá hafi þessi eldhúsdagur orðið á annan veg en sænska flugvélin, ekki afturþungur, heldur mjög afturléttur.
Í upphafi var mokað allmikið fyrir mínar dyr, en nú upp á síðkastið hefir mjög fátt hrotið að mínum dyrum.
Af þeim mörgu ræðum, sem fluttar hafa verið síðan ég flutti síðustu ræðu mína, hefir hv. 1. þm. Reykv. helzt vikið nokkru að mér, en um ræðu þess hv. þm. er það að segja, að í fyrsta lagi á hún ekki sem bezt við hér, í öðru lagi er hv. þm. dauður og í þriðja laga stillti hann miklu meira í hóf sínum ummælum um mig en ætla mætti, svo að ég sé enga ástæðu til að víkja að hv. þm. aftur.
Um þá ræðu, sem hv. þm. Ísaf. hinsvegar hefir flutt hér, vil ég segja það, að í hans ræðu voru mörg einstök atriði, sem ég vildi frekar tala við hann um og gera grein fyrir þeim mismunandi skoðunum, sem ríkja okkar í milli. En nú er mjög áliðið nætur og hinsvegar af því, að ég lít svo á, að flest þau deilumál séu svo vaxin, að ekki sé rétt að halda uppi í sambandi við fjárl. umr. um þau, heldur sé réttara að deila um þau hjá fólkinu, þar sem við, eins og aðrir forgöngumenn flokkanna, munum heyja baráttu um landskjörið, vil ég ekki tefja þessar eldhúsdagsumr. með því að ræða þau við hv. þm. Ég vil aðeins taka það fram, að það eru mörg atriði í ræðu hv. þm., sem ég er honum ósamþykkur um, og mun síðar gefa mér tækifæri til að ræða við hann um á þeim vettvangi, sem mér þykir betur til fallinn.