21.03.1930
Efri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)

8. mál, bændaskóli

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég sé ekki ástæðu til að ræða þessi atriði frekar við hv. 4. landsk. En þar sem hann talaði um sundurryðguð landbúnaðarverkfæri úti á landi, þá vil ég geta þess, að ég hefi nokkuð aðra reynslu um þetta. Fyrir 2½ ári síðan hitti ég fyrsta plóginn, sem notaður var á Íslandi og smíðaður var af Torfa í Ólafsdal, og hann var í sæmilegu ástandi. Bjargaði ég honum á safn landbúnaðarvéla, sem við höfum hér í Búnaðarfélaginu.