03.04.1930
Efri deild: 68. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (210)
1. mál, fjárlög 1931
Fjmrh. (Einar Árnason ):
Það var aðeins ein fyrirspurn, sem hv. 4. landsk. beindi til mín, og þarf ég ekki að eyða miklum tíma til að svara henni.
Hv. þm. spurði um, hvað veðdeild Landsbankans liði, og hvort flokkunum væri nú ekki lokið og að annar flokkur tæki til starfa.
Ég ætla að gefa þær upplýsingar, að 8. flokknum er nú lokið og 9. flokkur byrjaður. 9. flokkur er um 3 millj. kr. og er það afgangur af því, sem veðdeildarlögin heimila. Ég veit ekki betur en að 9. fl. muni nokkurn veginn fullnægja þeirri eftirspurn, sem nú er um veðdeildarlán. En að þeim flokki loknum þarf ný lög, ef á að halda áfram.
Ég held, að það hafi ekki verið annað, sem hv. þm. beindi til mín. Ég vildi aðeins benda á eitt atriði, sem hv. þm. beindi til hæstv. atvmrh., og hann hefir svarað. Það er um vegavinnukaupið.
Hv. þm. hélt því fram, að það væri óheppilegt, að vegavinna væri framkvæmd með ákvæðisvinnu. Ég held, að þetta sé af ókunnugleika hv. þm. Ég þekki dálítið til vegavinnu og veit ekki betur en verkamenn sækist eftir því að fá að vinna ákvæðisvinnu.
Hv. þm. hélt því fram, að þessi „akkorð“ væru illa gerð, vegirnir vondir, og strax þegar umferð byrjaði kæmi moldin upp.
Það er rétt hjá hv. þm., að það er svo um marga vegi, sem gerðir eru í gljúpum jarðvegi. En það er misskilningur hjá hv. þm., að það beri helzt á því um vegi, sem gerðir eru í „akkorði“. Þeir vegir eru yfirleitt eins góðir og þeir, sem gerðir eru í tímavinnu. Þegar vegir eru gerðir í akkorði, er það venja að skipta því í tvenn, undirburð sérstaklega og malarlag sérstaklega. Og verkstjórinn hefir daglegt eftirlit með því, að þeim skilyrðum sé fullnægt, sem sett hafa verið um það, hvernig verkið eigi að vera leyst af hendi. Þá er haft nákvæmt eftirlit með því, að malarlagið hafi þá þykkt, sem ákveðið er í samningunum. Ég held því, að það sé ekki rétt að leggja svo mjög á móti því, að ákvæðisvinnunni verði haldið áfram. Ég get ekki séð annað en að verkamenn séu ánægðir með það, þar þeir fá meira kaup en annars, og ríkissjóður fær meiri vinnu fyrir sömu peninga. Ég held því, að báðir aðiljar megi vera fullkomlega ánægðir með þetta fyrirkomulag.