27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1684 í B-deild Alþingistíðinda. (2291)

86. mál, kosningar til Alþingis

Jón Auðunn Jónsson:

* Ég skal ekki deila mikið um þetta mál, en vil aðeins geta þess, að mest er um vert að gera þeim, sem erfiðast eiga, sem léttast að sækja á kjörstað. Ég veit það t. d. með vissu, að fyrir Norður-Ísfirðinga er betra að hafa kjördag á laugardag, því að þá nota menn sunnudaginn til þess að komast heim, en ella færi mánudagurinn í það, en hann mega þeir ógjarnan missa frá störfum sínum. Hv. 2. þm. Árn. minntist á, að laugardagur væri óhentugur fyrir konur, sem yrðu þá að standa við þvotta, en þótt ég viti, að hv. þm. er manna kunnugastur högum kvenna þar eystra, vil ég þó draga það í efa, að konur annist t. d. fataþvotta á laugardögum.

Að öllu athuguðu er ég þess fullviss, að laugardagur er hentugasti kjördagurinn fyrir allan þorra manna, en þó einkum þá, sem langt eiga að sækja á kjörstað.