27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1685 í B-deild Alþingistíðinda. (2294)
86. mál, kosningar til Alþingis
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég vil aðeins segja það, að frá minni hálfu er ekkert kapp lagt á það, á hvaða degi kjördagurinn skuli ákveðinn, og um það gat ég strax í byrjun. Hinsvegar virðist mér það að ýmsu leyti betra að velja sunnudaginn, og því er ég honum fylgjandi. Annars vil ég segja það svona í spaugi við hv. þm. Dal., að ef fara ætti eftir biblíunni í þessu efni, þá yrðum við tafarlaust að velja sunnudaginn, því að sjöundi dagur vikunnar var hvíldardagur, en það er einmitt laugardagurinn. (SE: Þá hefir mér verið kennt vitlaust í æsku).