27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1688 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)

86. mál, kosningar til Alþingis

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég er sammála hv. 1. þm. Rang. um það, að þessar umr. eru með öllu óþarfar. Málið er svo einfalt, sem frekast er hugsanlegt, aðeins að velja á milli þessara tveggja daga. Það er óþarfi að draga helgi hvíldardagsins inn í umr. Spursmálið er, hvort það er hentugra fyrir landsfólkið að kjósa á sunnudegi eða laugardegi. Það er algerlega óþarfi að blanda öðru þar inn í. Hér er líka aðeins um eitt einasta tilfelli að ræða, og þess vegna einungis tilraun. Ef þetta kynni að reynast heppilegt, þá er sjálfsagt að gera það.