01.03.1930
Efri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (2315)
86. mál, kosningar til Alþingis
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég vil beina þeirri ósk til hv. d., að hún afgr. frv. eins og það er nú, svo að það verði að lögum nú þegar.
Um brtt. á þskj. 203 vil ég segja það, að hún var felld með miklum atkvæðamun í Nd., og geri ég því ekki ráð fyrir, að Nd. muni fallast á hana. Annars ætla ég ekki að fara út í þær umr., sem voru í Nd.; ég geri ráð fyrir, að hv. dm. hafi fylgzt með þeim. En um brtt. á þskj. 206 vil ég geta þess, að hún er alveg óþörf. Ég vil lýsa því yfir frá stj., að það mun verða séð um það, að kosningin komi ekki í bága við messugerð á þessum degi og valdi ekki messufalli. Þannig mun þá nást sá tilgangur, sem er í þessari till.