07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (2358)
238. mál, útvarp
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Hv. 2. þm. G.-K. lýsti yfir því, að hann væri á móti málinu og að hv. þm. Dal. mundi tala fyrir hans hönd sem frsm. minni hl. Virðist mér þar með komin skýr yfirlýsing um það, að hv. þm. Dal. sé einnig á móti málinu, og ætti hv. minni hl. þá ekki að þurfa lengri tíma til að átta sig á því, því að þessar yfirlýsingar bera það með sér, að hv. minni hl. er þegar búinn að átta sig á málinu. Krafa hv. þm. um að taka málið af dagskrá, unz nál. er skilað, er því fram komin í þeim tilgangi einum að spilla fyrir því og tefja framgang þess. Það kemur ekki til mála, að minni hl. í nefndum geti fengið mál tekin af dagskrá í það óendanlega, með því að koma sjálfir ekki með nál. — Þar sem tilgangurinn með því að heimta málið nú af dagskrá er svo augljós, verð ég að leggjast á móti því, að orðið verið við þessari kröfu.